Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

TOT?

29. nóvember 2008 klukkan 01:04

Líst er eftir Kolfinnu Snæbjarnardóttur... landsmenn hafa fengið frekar lítið af fjöldapósti það sem af er vetri.

Ef einhver hefur orðið var við ferðir hennar er sá hinn sami vinsamlegast beðinn um að kvitta, já eða hringja í undirritaðan.

Kv. Jan Eric
sími: 6154433

 

 

 

Inntökuprófin

09. júlí 2008 klukkan 00:09
Ómægooood.
Ég komst inn :):):)
Ég er í þvílíku tilfinningasjokki! Vá, ég titra!

Í staðinn fyrir það að láta ykkur vita strax eins og ég var búin að lofa svo mörgum óska ég eftir lífi á þessari síðu frá örðum en mér ;)

Bestu kveðjur,
Kolfinna - verðandi læknanemi :)

Myndasíđa:)

23. júní 2008 klukkan 20:18
Jæja krakkar mínir

Þar sem ég hef alltaf svo ótrúlega mikið að gera hérna á tjaldstæðinu á kvöldin hef ég ákveðið að eyða þessum dýrmæta tíma mínum í að búa til flickr myndasíðu fyrir okkur:) (Það þarf víst að borga fyrir myndirnar á þessari síðu ef þær verða fleiri en 20.) Núna getum við sem eigum myndir loksins deilt þeim með ykkur hinum, svo endilega verið dugleg að setja eitthvað inn. Ég gat sett inn eina mynd á nó tæm svo þetta getur ekki verið flókið;) Annars verður síðan svo tómleg... Ég á nokkrar myndir í tölvunni heima og ætla að setja þær þana við fyrsta tækifæri. Ég man líka að Arna var mjög dugleg á myndavélinni síðasta þriðjudag;) Svo man ég eftir Herdísi með myndavél heima hjá Janna...

Notendanafnið og lykilorðið er í MA-póstinum ykkar. Þið farið bara inn á flickr.com og skráið ykkur inn þar.
Ég finn ekki linkinn á þessa myndasíðu fyrir óinnskráða svo ef þið gerið það þá megið þið endilega skella honum hérna á síðuna okkar:)

Annars hefur lítið merkilegt gerst hjá mér síðan í síðustu viku. Það sem stendur uppúr er væntanlega þegar ég gaf 6 ára barni með mjólkurofnæmi AB-mjólk áðan. Ég hef aldrei verið jafn hrædd og þá því stelpan hélt í alvörunni að hún mundi deyja. Sem betur fer skjátlaðist henni... (Þetta sló út hrikalegu ferðinni á asnanum niður Akrapolis í Lindos)

Sjáumst,
kv.Kolfinna

P.S. Þið megið endilega setja inn upplýsingar um ykkur hérna til vinstri:)

Blogg nr.1

16. júní 2008 klukkan 20:39

Byrjum á einhverju einföldu:
Hvað eruð þið að fara að brasa í sumar? :)

Ég verð að passa litla brjálaða krakka í Útilífsskólanum á Hömrum ásamt því að vera tjaldvörður.

- Kolfinna

P.S. Við erum að fara að útskrifast á morgun, jiminn....